föstudagur, október 17, 2003
Enn einn föstudagurinn runninn upp. Ég sit núna í fyrirlestri hjá gestafyrirlesara um fasteignamat ríkisins eða eitthvað, satt að segja þá er ég ekki alveg með meðvitund, það er víst bjórnum að kenna frá því í gær. Við Lísa erum komin með gott kerfi (fyrir hana sko), hún má kaupa sér eitt hvítvínsglas á barnum og svo lætur hún mig fá kortið sitt, sparnaðaráætlunin mikla virkaði vel. Ég hef samt grun um það í næsta skiptið sem þetta verður gert þá á Lísa eftir að laumast í veskið mitt og kaupa sér allavega 1 glas í viðbót og spila sig svo sem litla engilinn hehe. Allavega við stúlkurnar í B3 skelltum okkur á kaffihúsið í gær að hlusta á fyndnustu persónu Bifrastar. Eftir það var svo partý í Hraunbænum, þar var fullt af fólki og gítarglamur á fullu. Er líða fór á nóttina voru einhverjir vitleysingar komnir í pottinn og fólk orðið yfir höfuð MJÖG ölvað. En mjög skemmtilegt kvöld í alla staði. Nú bíð ég bara eftir því að þessi fyrirlestur sé búinn svo að ég geti skellt mér til Reykjavíkur.
Tjá tjá,
Íris
Tjá tjá,
Íris